Hérna kemur uppskrift vikunnar börnin góð.
Hún er auðveld og fljótleg og alveg gratis. Gagnleg? Tja, það má alveg ábyggilega nota þetta til einhvers – ég veit ekki alveg hvers svona rétt í svipinn- en það kemur örugglega.
Uppskriftin er hér og hún er líka á ravelry.
Bráðum kemur svo frumsamin og afar gagnleg ókeypis uppskrift og sú verður meira að segja pólitísk. Bíðið spennt!
Mynd : Cristy Y. Rowley (Birt með leyfi höfundar)


