Vasi- dótablogg

 

Þessi vasi er er ómerktur með öllu, en hann er væntanlega frá því um 1900.

Hann kemur úr búi Hálfdáns Guðjónssonar prófasts á Sauðárkróki og Herdísar Pétursdóttur konu hans. Móðuramma mín vann hjá þeim sem ung stúlka og það gerði Sveina vinkona hennar einnig. Þá var vasinn í eigu prófastshjónanna. Amma mín og afi giftust 1919 svo vasinn er sannarlega eldri en það.
Sveina fékk vasann að gjöf þegar hún hætti að vinna hjá prófasthjónunum. Mörgum árum seinna, gaf hún móður minni hann. Og nú dvelur hann hjá mér.

Skær liturinn, bylgjumunstrið, kanturinn og svo það hvaðan hann kemur auðvitað, gera hann alveg sérstakan.

Print Friendly

6 Responses to Vasi- dótablogg

  1. Kristín í París

    Söguhlutir eru bestir og þetta er mjög skemmtilegur vasi.

  2. Alltaf ennþá skemmtilegra að hafa sögu með.

  3. Já einmitt!. Glerið endurspeglar ljósið mjög skemmtilega. Þetta er örugglega svona carnival gler.

  4. It really is Sue. I treasure it and try to keep it safe.

  5. What a wonderful story of the vase. It must be very special to you.

  6. Fallegur vasi, mér sýnist þetta vera sk. carnival gler, það endurspeglar ljósið á litskrúðugan hátt.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>