Að mála

Þetta eru ekki leiðbeiningar

Ég veit nánast ekkert um málerí og ég er ekki flink í neinu svoleiðis. Húsbóndinn sér um þá deild á þessi heimili, enda kominn af miklu málaraslekti og nánast atvinnumaður í greininni.

Ég er aftur á móti klaufi með pensil. Ég skil eftir helgidaga (dauðasynd), sulla (næstum því eins slæmt) og er almennt til vandræða, þrátt fyrir góðan vilja.

En í gær mundaði ég samt pensilinn. Húsbóndinn var að heiman og mér höfðu áskotnast ómeðhöndlaðar hillur á bílskúrssölu fyrir slikk. Mig langaði að koma honum á óvart og hafa þær uppsettar og fínar þegar hann kæmi heim.

Ég gluðaði á þær olíu og það var mjög auðvelt.

Það er eitthvað virkilega gefandi við að olíubera þurran við. Nánast eins og að færa mjög þyrstum manni vatn. Og svo verður viðurinn líka strax svo miklu fallegri.

En svo áskotnaðist mér líka mini kommóða. Hún var hálf sjúskuð og það var svolítið vond lykt af henni, en þegar ég var búin að skrúbba aðeins af henni var hún alls ekki svo slæm. Ég ákvað að mála hana.

Ég fann hvíta veggmálningu í kjallaranum og túbu af grænum hobbýlit í málningarkassa heimasætunnar.

Ég reyndi að blanda  Sænskan eldhús grænan. Það tókst ekki alveg, en svona næstum.

Ég þakti alla fleti vel og vandlega (lyktin þið vitið) og reyndi að mála jafnt.

Ég sullaði smá, en alls ekki mikið. Mest á hendurnar, en það náðist auðveldlega af.


Þegar ég var búin með tvær umferðir og allt var orðið þurrt og fínt, skellti ég doppum á tvær skúffur. Fyrst málaði ég blóm, en það var allt of krúttlegt fyrir mig svo ég þurrkaði þau strax af.
Og hér er svo kommóðan litla.

Þetta verður nýja tölugeymslan mín. Það væri auðvitað betra ef hún væri með heldur fleiri og kannski minni skúffum, en þetta er samt mikil framför frá fyrra geymslukerfi, sem var hið margreynda  troða öllum tölunum í eitt (flott) box.

Print Friendly

2 Responses to Að mála

  1. Takk! Þetta er hræbbillegt frá ikea, held ég allavega. En ég fer helst ekki þangað ef æeg kemst hjá því, svo það er fínt að fá þetta svona „að himnum ofan”.

  2. Skemmtilegt húsgagn.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>