Jólasýningin

Hin árlega jólasýning Fjörfimiliðs UMF Kötlu var í gærkvöldi. Liðið er frekar ungt núna, stór hluti þess byrjaði í haust, þannig að sýningin var kannski ekki mjög fljókin, en stelpurnar stóðu sig vel, og allir voru ánægðir.

Á eftir sýningunni var heiðursklappstýra ársins kynnt. Það er orðin hefð að velja heiðursklappstýru ársins á jólasýningunni. Heiðursklappstýran er fullorðin, karlmaður eða kona, en hann eða hún verður að hafa gert eitthvað gott og gagnlegt fyrir skólann, liðið eða samfélagið á árinu. Stúlkurnar geta tilnefnt hverja sem þær vilja og svo kjósa þær sjálfar í leynilegri kosningu. Fullorðnir hafa ekki kosningarétt.

Heiðursklappstýra ársins 2011 er Anna Birna Björnsdóttir. Hún bjargaði liðinu síðasta vor, þegar einn af grunnunum okkar heltist úr lestinni og tók þátt í sýningum sumarsins, bæði á 17. júní og á unglingalandsmótinu. Hún tók sér tíma frá fullri vinnu og stóru heimili til að mæta á æfingar og læra atriðið svo það er engin furða að hún hafi unni með yfirgnæfandi fjölda atkvæða.

Hér eru myndir frá gærkvöldinu og ein frá því í sumar, með Önnu Birnu.

Print Friendly

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>