Tag Archives: Iceland

Þokumorgunn

Þokumorgunn

Það var fallegt í borginni í morgun. Leyfar af þoku læddust um og morgunhrímið þiðnaði á gróðrinum.

IMG_3772wm

Fall

Fall

Fog

Morning Mist

Útsaumsspor

Önnur ,,línan” á græna hattinum er komin vel á veg. Þó hún sé ekki alveg tilbúin má auðveldlega sjá á hvaða leið hún er og sjá fyrir sér nokkurn veginn hvernig hún mun verða.

Útsaumsspor

Ég hef fengið nokkrar spurningar um sporin sem ég nota. Svo ég ætla að reyna að muna að geta þeirra jafn óðum.

Á þessari ,,línu” notaði ég Basques por sem grunn. Inni í því eru lítil blóm út Uppfitar spori ,sem er eitt af uppáhalds sporunum mínum. Hægra megin eru gisin lauf úr Feather stitch  (sem ég man ekki hvað heitir á íslensku). á þeim eru lítil lauf úr Stökum lykkkjusporum. Hinum megin eru stærri lauf, líka úr  stökum lykkjusporum, en inni í þeim eru Franskir hnútar.

Draumakjóllinn

Það er ferming í vor. Röðin er komin að heimasætunni og í ár á að spara. Skórnir voru keyptir á janúarútsölu, ég ætla að greiða henni sjálf, taka myndirnar og veislan verður heimabökuð. En draumakjóllinn er kominn í hús og þetta er allt sem verður sýnt af honum í bili:

Grámi og prjónles

Today´s rock picture

Þetta er gömul mynd en hún verður að duga. Ég er mjög kvefuð og fer þess vegna ekki út úr húsi.
Himininn í dag er alveg eins og á myndinni, grá og ekki mjög upplífgandi. Aftur á móti er mun meiri snjór.

Bolurinn á brúnu ,,lopapeysunni” er búinn og ég er byrjuð á listunum. Ég er líka byrjuð að bródera í græna og hvíta hattinn. Það koma myndir þegar ég er orðin aðeins skárri.

Þangað til er tilvalið að skoða uppskriftasíðuna mína, og hjálparsíðuna. Þær hafa báðar verið uppfærðar nýlega.

Winter photograph Iceland

Grátt á ská - Grey lines

Þetta er gömul mynd (vélin er í hreinsun), en hún gæti svo sem verið tekin í dag. Snjórinn bráðnar aðeins í rigningum, en svo snjóar aftur og stormar eru óvenju tíðir. Matar og póstbílar verða oft frá að hverfa
og þá er lítið um ferskvöru í búðinni. En það bjargast alltaf, frostvara er ágæt og gulrætur og kartöflur geymaswt þokkalega.