Mér finnast þetta alveg svakalega flottir skór. Þeir eru litríkir, óvenjulegir, en samt ekki of flippaðir fyrir aldraðar konur eins og mig. Hugmyndin er ekki mín. Ég fékk myndirnar lánaðar frá bloggi sænska hönnuðarins Önnu Lindström (með vinsamlegu leyfi hennar að sjálfsögðu).
SKÓSKREYTINGAR
Það er alls ekki erfitt að skreyta skó, eins og Anna gerir hér. Hún hefur sett upp ítarlegar leiðbeiningar á blogginu sínu. Það er á sænsku, en þó sænskan sé kannski ekki alveg fremst í minninu þá ætti það ekki að vera vandamál. Myndirnar tala sínu máli og svo er lítil ,,orðabók” hér fyrir neðan með orðum og setningum úr leiðbeiningunum. SWEDISH-ENGLISH MINI GLOSSARY Decoupage:listin að skreyta hlut með því að líma úrklippur á hann. Klack/ar: : hælar/háhælaðir skór. Tejpade sulorna: setti límband á skósólana. Sprayade dem med svart halvmatt lackfärg: Spreyjaði þá með hálfmöttu svörtu lakki. Fixerade allt med tre lager sidenmatt spraylack : Festi allt með þremur lögum af silkimöttu lakki á úðabrúsa, För att ge en extra hållbar yta använde jag decoupagelack: Lakkið yfir með decoupagelakki til að fá sterkt yfirborð. För att sammanfoga papper och sko fyllde jag igen alla ytterkanter med lacket. Precis som att spackla : Fyllið í alla kanta með lakkinu, alveg eins og þegar sparslað er.
Here is a very detailed video, on how to decoupage shoes.
And here is a very cool video on how to use a doily to decorate wedgies.


