Sumarkjóllinn fyrsti

Fastir lesendur muna kannski eftir sumar saumalistanum. Ekki?

Í gær gat ég strikað út eitt stykki af listanum. Mjög einfaldan sumarkjól fyrir snúlluna.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Saumaskapurinn tók klukkutíma og tuttugu mínútur, með öllu. Og það þó ég hafi fengið heilmikla hjálp frá snúllunni. Hún stjórnaði nefnilega fótstiginu á vélinni (standandi fyrir framann stólinn minn) þegar ég faldaði kjólinn að ofan og neðan.

Hún var mjög flink við að halda jöfnum hraða skal ég segja ykkur.

Hún valdi efnið sjálf. Hún hafði þessi fjögur að velja úr:

og þó hún hallist mjögbleiku, valdi hún það hvíta með bláu og bleiku blómunum.

En hún var mjög hrifin af þeim öllum og tjáði mér að ég mætti alveg gera fleiri kjóla handa sér.

Þetta tiltekna efni hefur verið í minni eigu í áratugi. Það er eins og mig minni að móðir mín hafi keypt það upphaflega, en ég gæti líka hafa gert það sjálf.

 

 

Ég studdist við þessar fínu leiðbeiningar og það eina sem ég bætti við var lítil blúnda við faldinn.

Print Friendly

7 Responses to Sumarkjóllinn fyrsti

  1. Pingback: The Second Summer Dress « Harpa Jónsdóttir

  2. Svona er minnið orðið – ég var alveg til með að trúa þessu með náttkjólana :-)

  3. Flottur og einfaldur kjóll. Þið systur áttuð ekki neitt úr þessu efni. Ég keyfti þetta á sínum tíma í náttkjól á mig.

  4. Það líst mér vel á Tinna! Um að gera að byrja bara, það er nóg til af einföldum sniðum, bæði á netinu og í blöðum.

  5. Jú – það er ábyggilega rétt hjá þér!

  6. Ég kannast við þetta efni og held að það hafi án efa verið í eigu mútter. Getur verið að við höfum átt kjóla eða náttkjóla úr þessu efni?

  7. Flottur kjóll!
    Ég fékk nýlega saumaleiðbeiningabók og ætla mér stærri hluti en einfaldar saumsprettuviðgerðir þegar ég fer aftur út í haust, þar sem saumavélin mín fína bíður.
    Það er raunar Gylfi sem hefur verið afkastamestur í saumaskapnum, hann hefur stytt gardínur og saumað poka og hulsur utan um myndavélar, tónsarpa og kyndla.
    Ég hef aðallega einbeitt mér að því að finna falleg efni hjá Myrorna eða Stadsmissionen og geymi þau þangað til ég kann að sauma almennilega úr þeim.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>