Systir mín gaf mér fínan jakka um daginn. Hann er mjög vandaður og þó hann sé notaður þá er ekki hægt að sjá að hann hafi nokkurn tíman farið af herðatrénu.
Jakkin er afar vel sniðinn og saumaskapurinn er sérlega fallegur.
Ermarnar eru meira að segja nógu langar og það er síður en svo sjálfsagt, skal ég segja ykkur.
En hann var full víður og helst til gulur til að fara mér vel.
Svo ég breytti honum smávegis.
Fyrst fiktaði ég aðeins í litnum. Ég aflitaði jakkann (með klór, þið lofið að segja engum). Ég nota næstum aldrei svoleiðis eitur, svo ég ákvað að mér yrði fyrirgefið í þetta sinn.
Bleikingin virkaði mjög vel. Fyrst notaði ég lítið og þá varð jakkinn skær appelsínugulur – en sá litur fer mér enn ver en sá guli. Þá endurtók ég leikinn og fékk út föl ferskjulitan tón sem mér finnst nokkuð skemmtilegur og það sem meira er, ég lít ekki út eins og uppvakningur í honum.
Þá var mál að þrengja jakkann aðeins. Ég vildi ekki eiga við fallegu saumana að aftan, en hliðarsaumarnir eru einfaldari svo ég þrengdi hann þar.
Þá datt mér í hug að bæta við smá vélútsaumi. Það var svo sem óþarfi, en mig langaði til þess.



Ég er mjög ánægð með nýja sumar jakkann minn.








Very cute! I love the embroidery.
Sew cute. Hahahaa.. get it?
Ég tek samt ENGA ábyrgð á þessari aðferð!
Ég verð að prófa svona þvottavélaklórun á kjól sem ég á. Einhvern tímann á þessari öld.
Þú ert svo mikill snilli. Ég vissi að þú gætir gert eitthvað flott við þennan jakka!
þú ert náttla BARA snillingur, Harpa!
kv.Fríða
Takk!
Ég setti klórinn í þvottavélina, eftir hún var byrjuð að taka vatn inn á sig. Það virkaði svona líka vel.
Já, snilldarhandbragð eins og alltaf, en er með sömu spurningu og Guðný Pálína, hvernig er hægt að klóra án flekkja?
Kemur rosalega vel út hjá þér! Flott líka hvað tókst vel að breyta litnum á honum án þess að hann yrði flekkóttur.