Vor

Vorið er staðreynd hér á svörtu ströndinni. Ég hef reyndar ekki rekist á tjalda ennþá, en ég heyri í þeim oft á dag.



Útsaumurinn á bláa hattinum mjakast áfram og ég er að velta næsta prjónaverkefni fyrir mér. Ég hallast að því að það verði hneppt lopapeysa á húsbóndann, það er orðið þónokkuð síðan ég prjónaði eitthvað á hann (fyrir utan vettlinga og húfuræfil) en þessa peysu prjónaði ég í september 2007:

Lopapeysa - Icelandic wool sweater

Ég hef aldrei verið alveg ánægð með hana. Hún er í styttra lagi og munstrið að framan dróst aðeins til þegar ég saumaði rennilásinn í.
Ég geri ráð fyrir að teikna upp munstur í nýju peysuna, en ég gæti líka alveg tekið upp á því að nota bara eitthvað tilbúið. Það kemur í ljós.

Print Friendly

4 Responses to Vor

  1. Yndislegar myndir. :)

  2. Rosa flott mynd. Mæli með því að hann fái hneppta peysu.

  3. Such gorgeous photos! I’m glad to enjoy your spring since it hasn’t come to visit here yet. By the way, I’ve been meaning to say that I also always enjoy the ‘Rock Pictures’!

  4. Kristín í París

    Ah, Icelandic spring is at least as wonderful and nice as the Parisian spring:)

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>