Kragi

Þetta er ,,uppskrift” sem ég get birt strax. Hún er nefnilega svo einföld að það tekur því varla að skrifa hana niður. En ég gerði það nú samt, ekki síst fyrir enskumælandi lesendur, sem sækjast töluvert eftir svona einföldum stykkjum.

Svona kragar eru mjög hentugir og það er  tilvalið að nota afganga í þá.

Kragi

Stærð: 6-9 (12 – 18) mánaða

Garn: Ungbarnaull, til dæmis Lanett, Dale eða eitthvað svipað. Í ,,módelstykkinu” eru hvítu rendurnar úr Lanett, það fjólubláa er Dale og marglitu rendurnar eru mismunandi tegundir af mjúku sokkagarni.

Prjónar: 2.5 mm

Prjónfesta: 29 lykkjur and 40 umf. = 10×10 cm

Fram/aftur flipi

Fitjið upp 32 (38) l og prj  3 umf  perluprjón.

*prj 1 umf slétt

prj 2 l slétt, prj brugðið þangað til 2 l eru eftir á prjóninum, prj 2 l slétt*

Endurtakið frá* til * (Slétt prjón með 2. l garðaprjónskanti )  þangað til stykkið mælist 8  (10.5) cm.

Frá réttu: prj 2 l slétt, aukið út 1 l, prj slétt þar til 2 l eru eftir á prjóninum, aukið út 1 l, prj 2 l slétt. Leggið til hliðar og prjónið annan alveg eins.

Tengið flipana saman í hring og prjónið *2 l slétt, 2l brugðið* .Haldið áfram þangað til stroffið mælist 11 (14) cm, eða eins og óskað er. Fellið af með saumaðri affellingu. Það er lykilatriði. svo að kraginn verði nógu mjúkur og teygjanlegur.

Gangið frá endum og þvoið kragann.

Print Friendly

3 Responses to Kragi

  1. Pingback: Christmas | Harpa Jónsdóttir

  2. Pingback: Yesterday’s Light | Harpa Jónsdóttir

  3. Nauðsynlegar flíkur á hverju heimili.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>