Ég er rétt byrjuð að prjóna alpahúfuna og ég ákvað að búa til mína eigin uppskrift.
Það er svo sem enginn skortur á fallegum alpahúfu uppskriftum. Kannski prjóna ég hina ofurfallegu Uppländs Fågelkrans Hat, Brynju húfuna eða December Lights Tam seinna.
Í í þetta sinn verður það mín eigin Helene.
Munstrið er tilbúið, ég er búin að reikna og teikna. Húfan verður með röndum og átta blaða rósum í bland.
Prufuprjónið sem ég var að klára um daginn er búið. Það var auvitað Alda.
Mig langaði að prjóna hana einu sinni enn, til að vera nú 110% viss um að upskriftin virkaði. Belti og axlabönd, þið vitið.
Garnið var í þetta sinn Drops Delight í lit nr. 07. Ég notaði nákvæmlega tvær dokkur.
Trefillinn er svolítið minni gerður úr þessu garni. En hann er mjög mjúkur og þægilegur þrátt fyrir það.





Juuu þetta stykki hafði farið framhjá mér greinilega, mikið svakalega er þetta flottur kragi! Og fallegar myndir af systur minni:)
Neeeei – þetta er ekki belti
En það er hægt að nota þetta sem belti – eins og sést hér: http://images4.ravelrycache.com/uploads/HarpaJ/75049765/Aldabelt_medium2.jpg
Þetta er bara sagt svona, þýðir að fara extra varlega: http://www.phrases.org.uk/meanings/61250.html
Þetta er kragi eins og sést hér: http://knitty.com/ISSUEdf11/PATTalda.php
Vá hvað litirnir í Öldu eru flottir! Er þetta semsagt belti? Ég sé fyrir mér að það væri flott að gera svona litaðan Öldu-kraga sem leggst kringum háls en ekki alveg út að öxlum, og bundin að framan.