Ég prjónaði þessa peysu handa nýja ömmustráknum fyrir jólin. Ég rétt marði það að klára hana á réttum tíma – en peysan heppnaðist ágætlega.
Í vikunni var ég svo heppin að dvelja hjá honum, stóru systur og foreldrum þeirra í örfáa daga, og notaði þá tækifærið og smellti af módelmyndunum hér fyrir ofan.
Ég geri mér grein fyrir að peysan sést ekki vel á myndunum – en hverjum er ekki sama um venjulega jakkapeysu þegar svona ofurkrútt á í hlut?
Hér eru tæknilega upplýsingar er einhver hefur áhuga á því: uppskriftin er afar auðveld og ókeypis, Easy Baby Cardigan frá Knitting pure and simple.
Garnið er Frá Rowan, Pure wool DK. Ég notaði stórar smellur í staðinn fyrir böndin sem uppskriftin gerir ráð fyrir og foreldrarnir eru mjög hrifnir af því.





What a lovely baby!
Oh, what a mug. He’s darling. The colors in the sweater are wonderful.
Oh what a cutie pie he is.