Allt í einu er þessi árstími kominn. Jólin eru rétt handan við hornið og gjafaskápurinn (sem allar húsmæður eiga auðvitað) er gapandi tómur. Og þú sem ætlaðir að gera sem mest sjálf í ár.
Það er sem betur fer enn tími til stefnu og enginn skortur á skemmtilegum og fljótlegum uppkskriftum. Og ekki kosta þær krónu heldur.
Ég er til dæmis hrifin af uppskriftasafni Drops. Ég hef notað tvær eða þrjár uppskriftir frá þeim og þær hafa reynst vel, verið vel skrifaðar og vandaðar.
Ókeypis jóla uppskriftir
Jólavinnustofa þeirra er full af allskonar jólauppskriftum og gjafahugmyndum. Það má líka finna ýmislegt smálegt í fylgihluta uppskriftasafninu .
Litla hjartauppskriftin (hér fyrir neðan) birtist í fyrra, en hún þolir vel endurtekningu finnst mér.
Hún er auðveld og fljótleg og það má skreyta hjartað hvernig sem er.
Hjartað mitt
Hönnun: Harpa Jónsdóttir
Handunnar gjafir úr afgöngum og/eða ódýrum efnum koma sér oft vel. Þetta litla hjarta má nota sem skraut á jólatré, í glugga eða bara hvar sem er.
Erfiðleikastig: Fremur auðvelt
Efni í hjörtun:
- Ístex Plötulopi 0001 – hvítur. 1 plata nægir í nokkur hjörtu
- Ullarkemba 0851 – hvít
- Sokkaprjónar nr. 6
- Stoppunál (til að fela enda með)
- Prjónamerki (næla eða smá spotti í öðrum lit)
- Stór næla eða hjálparband
Prjónafesta: um það bil 14 lykkjur and 20 umferðir = 10 x 10 cm. Prjónafestan þarf ekki að vera nákvæm þar sem hjörtun eru þæfð, en betra er að hafa hana í lausari kantinum.
Skraut:
- Blúndur, gjarna afgangar, afklippur og þess háttar
- Satínborði, um það bil 70 cm langur
- Hvítur tvinni
- Oddhvöss útsaumsnál
- Títupjónar
- Sex þráða útsaumsgarn (Árórugarn)
til dæmis DMC garn í litunum:
369 LT Pistachio Green
809DelftBlue
3713 V LT Salmon
Kljúfið þráðinn og saumið aðeins með einum þræði í einu.
Hjörtun:
Fitjið upp 4 lykkjur og skiptið þeim á 2 prjóna (2 á hvorn). Tengið í hring, setjið merki við upphaf umferðar og og prjónið 3 umf.
Prjónið framan og aftan í allar lykkjur (nú eru 4 lykkjur á hvorum prjóni, 8 í allt).
* Prjónið 1 l, aukið 1 l út. prjónið þar til 1 l er eftir á prjóninum. Aukið 1 l út, prjónið 1 l.
Endurtakið á seinni hliðinni. Prjónið einn hring.*
Endurtakið frá * til * þar til 22 lykkur eru á hvorum prjóni (44 í allt)
Prjónið þrjár umferðir.
„Hnúðarnir”
Setjið 11 lykkjur af hvorum prjóni á hjálparband eða nælu, þær ellefu síðustu af fyrri prjóninum og þær 11 fyrstu af þeim seinni.
Tengið lykkurnar sem eftir eru í hring, byrjið frá miðju og setjið merkið við byrjun umferðar og prjónið 3 umferðir.
* Prjónið 1 l, prjónið 2 saman aftan í lykkjuna, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóninum prjónið 2 saman, prjónið 1 l. Endurtakið á seinni hliðinni. Prjónið 1 umferð.*
Endurtakið frá * til * þar til 5 lykkjur eru eftir á hvorri hlið.
Lykkið saman að ofan.
Prjónið seinni „hnúðinn” á saman hátt. Gangið frá endum.
Þæfingin:
Sýnishornin eru þæfð í þvottavél. Það er afar misjafnt hversu mikið þvottavélar þæfa. Í sumum nægir að þæfa á 40° en í öðrum dugir ekkert minna en suða. 60° er algengur hiti, en ráðlegt er að byrja lægra og þæfa frekar aftur ef verið er að þæfa í fyrsta skipti. Gott er að setja eitthvað með sem ekki litar í vélina til að auka á þæfinguna.
Hjörtun eiga það til að lokast við þæfingu, en þá þarf að opna þau aftur, með hjálp skæra eða þess háttar. Eftir þæfingu eru hjörtun heldur ólöguleg, en verið óhrædd við að toga þau og teygja í rétt form. Þæfð ullin er sterk og þolir mikið „ofbeldi”. Ef hjartað hefur ekki þæfst alveg þógu mikið má setja það aftur í vélina, eða í þurrkara. Þar þæfist það aðeins meira, og þornar líka auðvitað. Athugið að það þarf að móta hjartað alveg áður en það fer í þurrkara.
Skreytingin:
Þegar hjartað er orðið alveg þurrt er það fyllt með ullarkembu. Gatinu er lokað með hvítum tvinna og þá er það tilbúið til skreytingar. Blúndan er klippt niður í hæfilega lengd og fest niður með títuprjónum. Svo er hún saumuð á með eins smáum sporum og hægt er.
Borðinn er festur á, annars vegar slaufurnar tvær, um það bil 18 cm. langar hvor og hins vegar sem hanki, 32 cm. Hvortveggja er fest með fræhnútum. Munið að sauma aðeins með einum þræði í einu. Að lokum eru saumaðir fræhnútar ofan í blúnduna og hér og hvar í hjartað, allt eftir smekk.
Fræhnútar:
Stingið nálinni upp í gegn um efnið og haldið í þráðinn. Vefjið þræðinum þrisvar sinnum (má líka vera tvisvar, nú eða oftar) utan um nálina. Haldið þétt um þráðinn og stingið nálinni niður í efnið, þétt við staðinn þar sem hún kom upp. Dragið varlega í gegn til að mynda hnútinn (sjá mynd).









































