Category Archives: Crochet

Gömul og ný peysa

Sum stykki taka lengri tíma en önnur.

Góð kona byrjaði á þessari jakkapeysu fyrir margt löngu, sennilega á sjöunda áratugnum. Hún rataði til mín hálfkláruð, bakið og annar boðungurinn tilbúinn. Það var ekki nóg garn í ermarnar og peysan var afskaplega stutt.

Hún beið í poka hjá mér í nokkur ár, en í vetur ákvað ég loks hvernig ég ætlaði að klára hana og hófst handa. Ég notaði það sem eftir var af garninu í ermar, eins langt og það náði og bætti svo við með afgöngum og hvítu kambgarni.

Vinnan gekk svona og svona. Ég lagði peysuna til hliðar nokkrum sinnum, gerði ein stór vandræðaleg mistök ( sem tengdust allt of þröngu stroffi sem gleymdist alveg að máta) og þurfti þar af leiðandi að rekja heilmikið upp.

En nú er peysan loksins tilbúin.

Heklað utan um tölur

Mér finnast tölurnar setja heilmikinn svip á peysuna. Það er afar auðvelt að hekla utan um tölur, leiðbeiningarnar eru hér.

Print Friendly

Heklað utan um tölur

Ljósbláa heklaða/prjónaða jakkapeysan er næstum tilbúin. Ég á bara eftir að græja síðasta fráganginn og til þess heklaði ég yfir þessar tölur:

Það er afar auðvelt að hekla yfir tölur. Hver hefur sína aðferð, hér er mín:

Heklað yfir tölur

Efni:

Tölur (þær sem ég notaði voru rétt tæpir 2 cm í þvermál. Það má auðvitað nota hvaða stærð sem er. )

Garn, gjarna ekki mjög gróft.

Heklunál, sem passar við garnið.

Stoppunál.

ll: loftlykkja

fl: fastalykkja/fastahekl/fastapinni

l: lykkja/lykkjur

umf: umferð

Heklið 8 ll og tengið í hring.
1 umf.: : 1 ll., 8 fl inn í hringinn.  *tengið síðustu l við þá fyrstu með keðjul. Allar umf enda á þennan hátt.

2 umf.: 1 ll, *2 fl í hverja l, út umf.

3 umf.: 1 ll, *1 fl, 2 fl í næstu l* endurtakið út umf.

Mátið við töluna. Stykkið ætti nú að vera farið að nálgast brúnina. Ef ekki, haldið þá áfram að stækka hringinn, með því að bæta við einni fl á milli útaukninganna í hverri umf.

4 umf.:1 ll, *fl, út umf.

Stykkið ætti nú að vera aðeins stærra en talan.

5 umf.:1 loftl, * *2 fh, sleppið 1 l. t*  endurtakið frá *út umf.

Gætið þess að réttan snúi út. Smokrið tölunni í ,,skálina”.

Slítið frá og þræðið garnið í gegn um lykkjurnar. Herðið að og gangið frá endanum.

Hér eru svo tölur fyrir lengra komna, blóma og stjörnu tölur meðal annars.

Print Friendly

Aðeins fleiri

Fermingarstúlkurnar tilbúnar fyrir athöfnina.

Takið eftir fallegu hekluðu hönskunum. Þetta eru fermingarhanskar móður minnar, en hún fermdist vorið 1952.


Print Friendly

Viðgerð

Lopapeysa

Þessi lopapeysa er búin að vera í uppáhaldi í mörg ár.
Svo mörg reyndar, að þetta gerðist:


Auðvitað hefði ég getað komið í veg fyrir að gatið myndaðist. Það er mjög auðvelt að styrkja lykkjurnar innan frá um leið og þær fara að þynnast. En ég tók ekki nógu vel eftir og þar sem ég legg oft hönd undir kinn, (og þar með olnbogann á borðið) fór sem fór.

Ég lét gatið ekkert á mig fá, og notaði peysuna nokkuð lengi þrátt fyrir það. Þetta er að mestu heimapeysa, mjög þykk og hlý, úr þreföldum plötulopa. Alveg tilvalin flík til að hlýja sér í, við kyrrsetur í hálf köldu húsi.

En við svo búið mátti ekki standa. Húsbóndinn var farinn að horfa undarlega á mig og ég heyrði rödd móður minnar í huganum, messa um að það væri allt í lagi að ganga í bættum fötum, en alls ekki í götóttum.

Svo ég tók mig til og gerði við gatið. Ég tók tímann, ,,aðgerðin” tók 15 mínútur með öllu, leit að heklunál og garni líka.

Þetta er kannski ekki fullkomin viðgerð, en peysan en mun betri en áður og þetta er nógu gott fyrir mig.

Ég heklaði hjartað ekki eftir uppskrift, heldur byrjaði bara á einni loftlykkju, heklaði svo 3 fastalykkjur í hana. Eftir þau er aukið út í fyrstu og síðustu lykkju í hverri umferð, þar til hjartað er orðið nógu stórt til að hylja gatið. Þá taka við tvær umferðir eða svo, án útaukningar. Bungurnar á hjartanu eru myndaðar með því að taka úr við fyrstu og síðustu lykkju í hverri umferð, þar til tvær lykkjur eru eftir.

Hér má finna prýðilega hjartauppskrift með myndum, og hér eru þýðingar á hekl orðum úr ensku yfir á íslensku.

Print Friendly

Góð heklsíða

Hekl virðist vera mjög vinsælt þessa dagana, ef eitthvað er að marka síður eins og pinterest og ravelry . Heklaðar dúllur, teppi, heilu flíkurnar, fylgihlutir, skartgripir og listaverk spretta undan heklunálunum, út um allan heim. Það er heldur ekkert undarlegt, það er gaman að hekla!

Leiðbeiningar og hugmyndir

Það er heilmikið af heklsíðum á netinu. Ein af mínum uppáhalds er Attic24.

Þar má finna hugmyndir og leiðbeiningar. Til dæmis þessa skemmtilegu blómaskreytingu:

Photo: Lucy, Attic24

þetta munstur,:

Photo: Lucy, Attic24

þar er sýnt hvernig hægt er að tengja dúllurnar jafn óðum, og ýmislegt annað.

Photo: Lucy, Attic24

Myndirnar eru birtar með vinsamlegu leyfi.

Print Friendly

Hálskragi

Hálskragi, ókeypis uppskrift

Það er auðvelt að aðlaga uppskriftina að barna hálskraganum. Þessi er fyrir fullvaxinn herra, með frekar sveran háls. Ég fitjaði upp 66 l á prjóna nr. 3 á hvorum ,,flipa” fyrir sig, jók út  1 l í hverju horni eins og segir í uppskriftinni , þannig að það eru  66+66+2+2 = 136 l í kraganum sjálfum.

Hekluð jakkapeysa

Fyrir mörgum árum gaf góð kona mér þetta:  Bakið og annað framstykkið var klárað og 1/3 af seinna framstykkinu. Uppskriftin fylgdi ekki með. Nú ætla ég að taka mig til og klára peysuna. Ég er næstum búin með seinna framstykkið, það er skotfljótlegt að hekla þetta og auðvelt að fylgja forminu á fyrra stykkinu. Heklið er fallegt, en þetta munstur er full krúttað fyrir minn smekk. Svo ég er að hugsa um að sameina prjón og hekl og setja stroff ermar, kraga, lista og vasa á peysuna. Ef garnið endist það er að segja. Ég hef ekki hugmynd um hvaða tegund það er, en ég er nokkuð viss um að það er úr ull.

Kannski verður þessi samsetning hörmung, hvað heldur þú?

Print Friendly

Blúnda og ,,ný” uppskrift

Blúndur eru fallegar. Jafnvel þær allra einföldustu, eins og þessar:

Þessi lengja á að fara á grátt hjarta. Ég hef aldrei heklað gráa blúndu áður, hvað þá prjónað grátt hjarta, og ég veit hreinlega ekki hvað kom yfir mig. En ég mun bæta við (mildum) litum með útsaumnum.

Þessar fallegu hvítu blúndur eru hluti af jólagjöf. Hinn hlutinn var öflugur blandari, sem hafði verið lengi á óskalistanum.

Ég er mjög hrifin af þeim, en veit ekki enn hvað þær ætla að verða.

Og svona í framhjáhlaupi, uppskriftin að töskunni Memories of Summer er nú til sölu á ravelry.

Reyndar bara á ensku.

Print Friendly

Húfa og hjarta

Bleika Hélène húfa heimasætunnar er nánast tilbúin. Hún er að þorna núna, strekkt yfir matardisk sem stendur á tómri sultukrukku.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég kláraði hana áður en Wallander var búinn að finna morðingjann í gærkvöldi.  Svo vitanlega varð ég að finna mér eitthvað annað að gera á meðan ég fylgdist spennt með. Heklunál og fínt heklugarn var innan seilingar, svo ég heklaði blúndur á fyrsta litaða hjartað sem ég hef nokkurn tíman gert.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Það lítur ekki merkilega út akkúrat núna, en ég held að það verði fallegt. Kannski verður það dregið úr hér, hver veit?

Print Friendly

Framlenging

Ég reyni oft að gera við hluti frekar en að kaupa nýja, bæði í sparnaðarskyni og svo reyni ég að minnka hlutanotkun (og þar með mengun) heimilisins.

hekla framlengingar á boli sem eru orðnir of ermastuttir er ein aðferð sem ég er dálítið hrifin af. Framlengirnar endast lengur en bolirnir og þær eru því margnota.

Ég stefni að því að hripa niður uppskrift að svona framlengingum (þó að vanar handavinnukonur þurfi auðvitað ekkert svoleiðis og geti eflaust gert miklu flottari framlegingar en þetta). En ekki fyrr en eftir páska, því nú þarf ég að þrífa. Það koma nefnilega mikilvægir gestir um páskana…

ps: Ég ætla að prjóna ljótu sokkana – bara vegna þess að meirihluti þeirra sem lagði orði í belg mælti með því. Svon get ég verið áhrifagjörn. Ég hugsa að ég verði samt lengi með þá, því að peysan og hatturinn eru í klárum forgangi.

Print Friendly

Meiri blúnda

Ég heklaði aðeins meiri blúndu í gær. Fyrri lengjan dugði ekki alveg til, þegar ég var búin að tylla henn á með títuprjónum sá ég að það vantaði nauðsynlega blúndu á hattbarðið. Svo ég bætti þessari einföldu við og núna er hatturinn klár til bróderingar.

Og á meðan ég man, vorið virðist vera á leiðinni:

Print Friendly