Matarlitur, polyester
og öskudagsbúningar
Það er ekki hægt að lita bómull með Kool-Aid. Flestar vefsíður sem ég skoðaði fullyrtu það. Þó vitnaði eigandi einnar um ágætan árangur við að lita hvítt bómullargarn með áðurnefndu dufti, og það vakti með mér vissa von. Mig langaði nefnilega mikið að líta ljósan slopp og ég átti ekki fatalit. Svoleiðis fínerí fæst ekki í þorpinu og það var ekki tími til að panta það.
Sloppurinn átti að verða hluti af búningi heimasætunnar, sem Múlan í brúðardressinu. Meira um það á eftir. En að lituninni. Ég hélt sem sagt að sloppurinn væri ú bómull, en við nánari athugun kom í ljós að hann var úr bómullarblöndu, eða réttara sagt pólyesterblöndu, 65% pólyester og 35% bómull. En ég hafði svo sem engu að tapa, þessi flík hefði lengi átt heima í búningatöskunni svo ég ákvað að láta bara vaða.
Ég steingleymdi að taka ,,fyrir” mynd, en hér er ,,á meðan” myndin:
Ég notaði tvö bréf af Kool-Aid og dass af bláum og rauðum matarlit, leyst upp í heitu vatni. Svo lét ég sloppinn liggja í bleyti klukkutímum saman, en ég hreyfði hann oft til og sneri honum.
Og þetta virkaði. Liturinn er svo sem ekki sterkur, en hann er fallega bleikur og heimasætan er ánægð með hann.
Liturinn er ekki fullkomlega jafn, en heldur ekkert mjög röndóttur. Sloppurinn var ansi blautur þegar ég hengdi hann upp, ég þorði ekki að vinda hann í vélinni.
Hér er mynd frá fyrstu mátuninni, fyrr í dag:
Það vantar auðvitað heilmikið, málninguna, hárið og fleira. Það kemur, hér fyrir neðan.
Þessi öskudagur er rólegri en undanfarin ár. Heimasætan vann til verðlauna fyrir besta búninginn síðastliðin tvö ár.
Í fyrra fyrir vampíru brúðina :


Og þar áður fyrir Na’vi stúlkuna

Í ár keppir hún ekki. Hún er í undirbúningsnefndinni og dómnefndinni. En hér er búningurinn í ár:
Hún málaði sig alveg sjálf (eins og í fyrra reyndar). Hún er í kjólnum frá því í fyrra undir sloppnum, Ég greiddi henni, blómin eru afgangur frá brúðkaupsalbúmi sem ég gerði fyrir systur hennar fyrir nokkrum árum.
Og að lokum, hér er hún með bekkjarfélögunum (þetta er virkilega lítið þorp) í morgunbúningunum.





















































